Bakaður sólkoli
Prenta uppskrift
Hráefni:
Sólkoli, lúða eða rauspretta
1 eða 2 fiskar eftir stærð fisks og fjölskyldu.
sítrónusafi
salt og pipar
hvítlauksostur
Sósa:
1/4-1/2 l rjómi
1 askja hvílauksostur
grænmetisteningur eða
annað krydd.
Aðferð:
Hreinsið fiskinn, klippið ugga af. Snúið svarta roðinu upp og skerið eftir miðju fisksins og fletjið út að uggum.
Piprið og saltið, kreistið sítrónusafa yfir, og smyrjið síðan hvítlauksosti yfir setjið líka krydd á efri hlið fisksins. Smyrjið eldfast fat eða ofnskúffu setjið fiskinn í og bakið á 200° í ca 30 mín.
Sósa: Setjið rjóma og ost í pott ásamt teningi og öðru kryddi eftir ósk.
Látið krauma við vægan hita í ca. 15 mín. þar til að sósan þykknar.
Berið fram með hrísgrjónum, kartöflum og góðu grænmetissalati.
|