Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir - Fiskisprengja Vissir þú haus


Fiskisprengja

Prenta uppskrift

Hráefni:

1 kg ýsuflök
100-125 gr brauðmylsna
1 1/2 tsk salt
1 1/2 tsk pipar
1/4 tsk karrí
1 1/2 dl rjómi
150 gr smjör.


Sósa:

50 gr smjör
3 paprikur,helst gul,rauð og græn
1/2 dós sveppir
1 laukur
1 tsk salt
2 1/2 dl rjómi
250 gr smurostur m/rækjum
75 gr hvítlauksostur (steyptur ostur)
1 tsk súpukraftur
200 gr rifinn ostur,sterkur,26% ostur.


Aðferð:

Hitið ofninn í 175C.
Hreinsið og roðflettið ýsuflökin,skerið þau í litla bita og setjið í skál.
Blandið saman karríi og rjóma og hellið yfir fiskbitana.
Blandið saman brauðmylsnu,salti og pipar og veltið bitunum upp úr því.
Steikið fiskinn í hluta af smjörinu í nokkrar mín og raðið síðan í eldfast mót. Látið renna af sveppunum ,geymið soðið.
Saxið laukinn og paprikurnar, látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann er meyr.
Bætið papriku og sveppum út í og látið krauma í 5 mín.
Bætið soði af sveppum og súpukrafti út í,þá smurosti,hvítlauksosti og rjóma.
Látið krauma við vægan hita þar til osturinn er bráðinn,hrærið í öðru hverju.
Hellið þessu yfir fiskinn og stráið rifnum osti yfir.
Bakið þar til litur er kominn á ostinn.

 

 

 

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir