Háfur
Prenta uppskrift
Hráefni:
800 gr flakaður háfur
1 dl rjómi
2 tsk piparrót, rifin
smjör til steikingar
200 gr gulrætur
1 laukur
200 gr blaðsellerí
1 blaðlaukur
sítrónu eða limebörkur (má sleppa)
salt
pipar
1 kúfuð tsk steinselja
Aðferð:
Skerið gulrætur,sellerí og blaðlauk i jafnstóra bita, um 0,5 cm stóra. Brytjið laukinn.
Setjið allt grænmeti ásamt sítrónuhýðinu í stóranpott með léttsöltu vatni (vatnið má ekki fljóta yfir grænmetið). Setjið lok á pottinn og sjóðið í 5 mínútur. Hellið megninu af vatninu frá.
Skerið háfinn í 5 cm stykki og síðan aftur langsum þannir að hver biti verði 3x5cm á stærð
Steikið háfinn í smjöri. Hellið rjómanum út á pönnuna og sjóðið í þrjár til fjórar mínútur, rjóminn þykknar við suðuna og hálfloðir við fiskinn. Bætið við rjóma er þurfa þykir.
Kryddið rjómasósuna með salti, pipar og rifinni piparrót.
Saxið steinseljuna. Setjið grænmetið á fat, háfinn ofan á og sáldrið steinseljunni yfir.
Gott að bera fram með hrísgrjónum eða kartöflum
|