Hnetusteiktur karfi
Prenta uppskrift
Hráefni:
900 gr karfi
50 gr hveiti
2 tsk salt
1 tsk pipar
2 egg
150 gr brauðrasp
70 gr heslihnetuflögur
matarolía til steikingar
Sósa:
250 gr majónes eða léttmajónes
1 dl rjómi
70 gr agúrka
2 msk ferskt dill
safi úr einni sítrónu
Aðferð:
Roð-og beinhreinsið karfann, nauðsynlegt er að fjarlægja öll beinin. Skerið flökin í hæfilega bita.
Blandið saman hveiti, salti og pipar og setjið í skál.
Hrærið eggin í annarri skál. Setjið brauðraspið ásamt heslilhnetuflögunum í þriðju skálina.
Hitið matarolíu á pönnu. Veltið fiskinum fyrst upp úr hveitinu, þá eggjunum og loks brauðraspinu með hnetuflögunum. Steikið hann í olíunni í tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið eftir þykkt stykkjanna.
Sósa:
Léttþeytið rjómann og blandið saman við majonesið.
Afhýðið agúrkuna, skerið í tvennt eftir endilöngu og fjarlægið kjarna. Skerið agúrkuna í litla teninga og blandið saman við sósuna.
Saxið dill og blandið því saman við.
Bragðbætið sósuna með sítrónusafa.
Meðlæti:
Berið steikta fiskinn fram með grænmetisblönduðum hrísgrjónum. Saman við hrísgrjónin er gott að blanda til dæmis papriku, sveppum lauk og grænum baunum.
Uppskriftin er fyrir sex
|