Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir - Koli í hvítvínssósu Vissir þú haus


Koli í hvítvínssósu

Prenta uppskrift

Hráefni:

4 kolaflök
25 g smjör
2 karlottulaukar, smátt saxaðir
21/2 msk hveiti
11/2 dl hvítvín
11/2 dl rjómi
1/4 tsk gróft salt
nýmalaður pipar
100 g 26% ostur, rifinn

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Bræðið smjörið í þykkbotna potti og látið laukinn krauma í því þar til hann verður mjúkur.
Stráið hveitinu yfir og hrærið í á meðan. Látið sósuna krauma við vægan hita í 2-3 mín. Smakkið og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Brjótið kolaflökin saman langsum og leggið í 4 lítil og smurð eldföst mót. Hellið sósunni yfir fiskinn og stráið rofna ostinum yfir.
Bakið í miðjum ofninum í 15-20 mín.
Berið fram með nýju brauði og smjöri.
Í stað kolans má nota krækling.

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir