Kotasælu ýsa
Prenta uppskrift
Hráefni:
2 ýsu flök
létt kotasæla
pestó (tómata)
laukur
2 tómatar
salt
chilli pipar
rifinn ostur
Einnig mjög gott að að bæta við pepperóní eða skinku.
Aðferð:
Skera niður grænmetið og setja fiskinn saman við í eldfastmót.
Setja svo kotasælunna sirka 2:3 af heilli dollu,enn fer eftir smekk, setja sirka hálfa krukku af pestó í mótið.
Setja kryddin út í hræra með sleif þannig að allt blandist. Fiskurinn líka
Strá svo rifna ostinum yfir þarf ekki að vera það mikið ef maður vill hafa réttinn ekki of feitann
Setja inn í ofn og baka við 180-200 gráður
þangað til osturinn er farinn að líta vel út sirka 20 mín.
|