Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir -Ofnbökuð smálúðuflök Vissir ţú haus


Ofnbökuð smálúðuflök

Prenta uppskrift

Hráefni:

1 ½ kg. Smálúðuflök
2 litlir laukar
50 g sveppir
1 ds. Lítil Rjómaostur
½ ds sýrður rjómi
2 dl majónes
1 msk mild paprika
1 msk sítrónukrydd
1 tsk. salt
smjör

Aðferð:

Saxið laukinn og sveppina og kraumið á pönnu í smjöri, kælið.
Smyrjið eldfast mót, skerið smálúðuflökin á hæfilega stór stykki og raðið í fatið.
Dreifið lauknum og sveppunum yfir fiskinn.
Blandið ostinum, sýrða rjómanum, majónesinu og kryddinu saman og smyrjið yfir fiskinn á fatinu.
Setjið fatið í 250° heitan ofn, og bakið í 5 mín. Í miðjum ofnunum.
Kveikið þá á grillinu og bakið fallega ljósbrúnt í ca.5 mín í viðbót.
Berið fram með t.d. hrísgrjónum sem valhnetum hefur verið blandað saman við.

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir