Rækju tortillas
Prenta uppskrift
Hráefni:
1 pkn. Santa Maria Wrap Tortilla
1/2 dl Santa Maria Taco Sósa Mild
1 pk Santa Maria Guacamole Mix
300-400 gr. rækjur
1 stk. hvítlauksrif, pressað
2 stk. avocado ávöxtur
1 dl. sýrður rjómi
3 msk. smjör
Laukhringir
Kál
Aðferð:
Stappið avocado ávöxtinn (kaupið vel þroskaðan ávöxt) og hrærið Guacamole kryddinu saman við, kælið í ísskáp meðan maturinn er eldaður.
Steikið hvítlaukinn í smjörinu. Bætið við Taco sósunni og eldið í ca. 2 mínútur. Bætið rækjunum við og hitið í gegn.
Hitið tortilla kökurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Fyllið með rækjunum og bætið við káli, lauk og avacado og Guacamole stöppunni
|