Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir - Sítrónulúða Vissir ţú haus


Sítrónulúða

Prenta uppskrift

Hráefni:

Lúða

Kryddlögur:
4 msk. Mango chutney
½ tsk ferskt engifer, rifið eða 1 tsk engiferkrydd
1 tsk karrí
1 ½ tsk kúmenduft
3 msk ólífuolía
3 msk sítrónusafi
3 hvítlauksrif, marin

Hrísgrjón:
2 ½ dl hrísgrjón
1 dl rúsínur
1 lítil dós ananasbitar (300 gr)
ananassafi úr dósinni

Aðferð:

Kryddlögur:
Blandið saman mangómaukinu, engiferi, karri, kúmeni, ólífuolíu, sítrónusafa og hvítlauk.
Penslið kryddleginum yfir lúðuna, báðum megin og látið liggja í ísskáp í einn til fjóra klukkutíma.
Glóðið lúðuna þar til hún er ljósbrún og penslið með afganginum af kryddleginum meðan glóðað er.

Hrísgrjón:
Leggið rúsínurnar í ananassafann á meðan hrísgrjónin eru soðin.
Blandið saman soðnum hrísgrjónum, rúsínum og ananasbitum.

Berið fram með brauði og salati.
Uppskriftin er fyrir 4.

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir