Sjávarréttasúpa
Prenta uppskrift
Hráefni:
1 stór laukur, fínsaxaður
1 gulrót, þunnt sneidd
1-2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
1 tsk oregano
1 tsk basil
2 tsk sítrónupipar
1 tsk svartur pipar
1/2 tsk karríduft
1/2 tsk fish masala krydd (má sleppa)
400 gr niðursoðnir tómatar
400 ml dós, humarsúpa
1/2 lítri vatn
2 teningar fiskikraftur (líka hægt að nota grænmetisteninga og bæta þá 1 msk fiskisósu út í)
150 ml mysa eða óóafengt hvítvín
350 gr ýsa, skorin í litla bita
400 gr frosnir blandaðir sjávarréttir (sem búið er að þíða)
150 ml undanrenna eða léttmjólk
Aðferð:
Hitið gulrót, hvítlauk og krydd í kókosfeiti eða ólífuolíu.
Bætið vatni, humarsúpu og tómötunum og mysunni/hvítvíninu saman við.
Hækkið hitann og leyfið að malla í nokkrar mínútur.
Bætið fiskinum út í þegar suðan kemur upp og leyfið að sjóða í u.þ.b. 8 mínútur.
Bætið blönduðu sjávarréttunum út í síðustu 2-4 mínúturnar (gætið þess að ofsjóða ekki).
Berið fram með nýju, grófu brauði, helst heimabökuðu speltbrauði, það er best.
Ef þið viljið gera súpuna meira spari, setjið þá 100 ml af matreiðslurjóma og 50 ml af léttmjólk eða undanrennu.
Ef það verður smá afgangur af súpunni, þá er upplagt að nota hana sem pastasósu daginn eftir!!
Þykkið súpuna með 2 tsk af sósujafnara leyst upp í 2 tsk af vatni. Sjóðið pasta og blandið saman, þá er kominn líka þessi fíni pastaréttur!!!
|