Sjómannafiskur
Prenta uppskrift
Hráefni:
Ýsuflök roðlaus og beinlaus
egg
mjólk eða rjómi
salt
pipar
fiskikrydd
ananasbitar
Sósa:
Sýrður rjómi
ţeyttur rjómi ef til er
tómatsósa smá sætt sinnep
sætur pickles
smá ananassafi
Aðferð:
Ýsuflökin skorin í bita, velt upp úr þeyttu eggi, smá mjólk eða rjómi settur saman við eggið.
Ýsubitarnir síðan settir í hveitið sem búið er að krydda með salti pipar og fiskikryddi. Fiskurinn snöggsteiktur í frekar heitu smjöri á pönnu. Síðan er fiskbitunum raðað í eldfast mót og ananasbitar settir með fiskinum og sett inn í heitan ofn í 15 mín. Þá er allt hráefnið í sósuna hrært saman, smakkað og blandað þar til fólki líkar bragðið. Þessari sósu er síðan hellt yfir fiskinn. Látið vera í ofninum í ca. 5 mínútur í viðbót þá er rifinn ostur settur yfir og hann látinn bráðna.
Með þessu er gott að hafa kartöflumús, hvílauksbrauð og ferskt salat.
|