Skötuselur í mangóchutneysósu
Prenta uppskrift
Hráefni:
700 g skötuselur- eða annar fiskur
250 g rækjur
3 msk. karrímauk
3 msk. mangó-chutney
2 msk. kóríander
1 stk. stór hvítlauksgeiri
grænmetiskraftur
1/4 lítri rjómi
4 msk. olía
salt
nýmalaður pipar
Aðferð:
Hreinsið skötuselinn og skerið í jafna bita. Hrærið saman karrímauki og mangó-chutney og saxið kóríander út í maukið.
Afhýðið hvítlauk, pressið og bætið út í maukið ásamt grænmetiskrafti og rjóma.
Hitið olíu á pönnu. Steikið skötuselinn í um 1 mín. á hvorri hlið á vel heitri pönnunni. Kryddið með salti og pipar en athugið að það þarf lítið salt vegna saltinnihalds grænmetiskraftsins. Raðið skötuselnum í smurt eldfats mót og setjið maukið yfir. Bakið í 10 mín. við 200°C. Takið fatið út eftir 8 mín. og stráið rækjunum yfir. Setjið fatið inn í ofn í 2 mín. til viðbótar.
|