Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir - Skotustappa Vissir ţú haus


Skötustappa

Prenta uppskrift

Hráefni:

1 kg. vel kæst tindabikkjubörð
200 gr hnoðmör
1 bolli haframjöl
4 matskeiðar þorskalýsi
400 gr. soðnar kartöflur.

Aðferð:

Börðin sett í sjóðandi vatn slökkt á suðunni eftir eina mínutu látið liggja í 5 - 7 mín. skatan síðan hreinsuð af brjóskinu.
Hnoðmörinn bræddur í vatnsbaði, hroðinn veiddur ofan af jafnóðum, síðan er allt hrært saman, eða sett í mixara sem er enn betra.
Þrumari með smjöri og staup af köldu brennivíni skemmir ekki.
Til að eyða lyktinni á eftir, er upplagt að sjóða jólahangiketið á eftir.

 

 

 

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir>