Steikt rauðsprettuflök með rækjum og camerbert
Prenta uppskrift
Hráefni:
8 stk rauðsprettuflök
1 stk camerbertostur
2 dl fisksoð
2-3 dl rjómi
100 gr rækjur
salt og pipar
grænmetiskrydd
sítrónusafi
Aðferð:
Steikið flökin á pönnu annaðhvort upp úr hveiti eða hveiti og eggi.
Skerið camerbertostinn í sneiðar, leggið flökin saman tvö og tvö og setjið eina sneið af camerbertosti á milli, setjið flökin á fat. Hellið rjómanum og fiskisoðinu á pönnuna sem fiskurinn var steiktur á og hitið ásamt restinni af camerbertostinum.
Kryddið með salti, pipar, grænmetiskryddi og sítrónusafa. Hitið rækjurnar í sósunni og hellið henni yfir fiskinn. Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum og salati.
|