Þorskur undir kryddþekju
Prenta uppskrift
Hráefni:
700-800 gr þorskur,gjarnan hnakkastykki
pipar
salt
2 msk olía
6-8 tómatar,vel þroskaðir
1 rúnnstykki,endi af snittubrauði eða annað sambærilegt
1 hvítlauksrif
steinselja og e.t.v. aðrar kryddjurtir eftir smekk
2 tsk Dijon-sinnep.
Aðferð:
Hitið ofninn í 200 C.
Kryddið fiskinn með salt og pipar og setjið hann í eldfast mót sem penslað hefur verið með dálitilli olíu.
Skerið tómatana í tvennt ,raðið þeim í kring,dreypið olíu yfir og kryddið með dálitlum pipar og salti.
Breiðið álpappír yfir mótið,setjið það í ofninn og steikið fiskinn í u.þ.b. 10 mín.
Rífið á meðan brauðið í bita og setjið það í matvinnsluvél, ásamt hvítlauk, kryddjurtum,pipar og salti. Látið ganga þar til allt er orðið að mylsnu.
Takið mótið úr ofninum og smyrjið fiskinn með sinnepinu.
Stráið þykku lagi af kryddjurtaraspi yfir og setjið einnig dálítið rasp á tómatana.
Setjið aftur áfram í ofninn í 3-5 mín,eða þar til fiskurinn er rétt steiktur í gegn og raspið byrjað að taka lit
|