Sjóstöngin
Forsíða - Uppskriftir - Þorskur í tómatsósu Vissir þú haus


Þorskur í tómatsósu

Prenta uppskrift

Hráefni:

2-3 þorskflök eða 4 sneiðar af þverskornum þorski

Tómatsósan:

4 msk ólívuolía
500 g tómatar, afhýddir og saxaðir
1 marið hvítlauksrif
1 msk söxuð steinselja
4 msk hvítvín (ég nota nú bara mysu í staðinn!!)
salt og pipar

Aðferð:

Byrjið á að laga sósuna. Hitið olíuna á pönnu, bætið tómötum og hvítlauk, steinselju og víni eða mysu á pönnuna.
Saltið og piprið eftir smekk. Látið malla í 7-10 mínútur og hrærið í öðru hvoru.
Setjið helminginn af sósunni í eldfast fat, raðið fiskstykkjunum ofan á og hellið því sem eftir er af sósunni yfir.
Setjið lok eða álpappír yfir fatið og bakið í 190 C heitum ofni í 20-25 mínútur.
Berið fram með grófu brauði og salati.

 

 

 

 

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir