Bakaður fiskréttur
Prenta uppskrift
Hráefni:
7-800 gr ýsuflök rođrifin (eđa smálúđa, rauđspretta)
4 stk laukur
1 stk sítróna
1 biti ferskur engifer
1 msk sojasósa
50 gr smjör
Aðferð:
Skerið fiskinn í smáar sneiðar. Rífið börkinn af sítrónunni og pressið safann úr henni, rífið engiferinn. Blandið saman sítrónuberki, safa, rifnu engifer og sojasósu. Látið fiskinn marenerast í leginum í 20-30 mín. Hreinsið laukinn og skerið í þykkar sneiðar, hitið laukinn í smjöri á pönnu þar til hann er orðinn mjúkur.
Leggið laukinn í smurt eldfast fat, setjið fiskinn yfir og kryddið með salti og pipar.
Bakið í ofni við 200°C í 25-30 mín. Borið fram með súrsætri sósu.
|