Fiski Tacos
Prenta uppskrift
Hráefni:
750 gr. fiskur, beinlaus og roðlaus, t.d. þorskur, skorinn í lengjur
12 stk. Santa Maria Taco skeljar
1 lítill laukur, fínt niðurskorinn
2 msk. olía
Salt og pipar
Santa Maria salsasósa
Grænmeti eftir smekk t.d lime sneiðar, kál og niðurskornir tómatar, laukur og lárpera (avocado)
Aðferð:
Hitið olíuna á pönnu við háan hita. Steikið fiskinn í 2 mín. á hvorri hlið.
Lækkið hitann og bætið lauknum út á. Steikið þar til laukurinn er orðinn glær og fiskurinn steiktur í gegn. Kryddið eftir smekk og setjið til hliðar.
Hitið Taco skeljarnar samkvæmt leiðbeiningunum á umbúðunum.
Setja svo fisk,sósu og meðlæti í skeljarnar.
|