Ýsa í dulbúningi
Prenta uppskrift
Hráefni:
1 poki úr pakka af hrísgrjónum
600 gr ýsuflök
100 g hveiti
salt og pipar
200 g sveppir
1/2 dós ananasbitar
8 msk majones eða léttmajones
3 tsk karrí
2 dl ananassafi
rifinn ostur
Aðferð:
Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum
Roðflettið ýsuna og skerið í hæfinlega bita, blandið saman hveiti, salti og pipar og veltið fiskinum upp úr því
Léttsteikið fiskinn í matarolíu, smyrjið eldfast mót með smjöri, setjið hrísgrjónin í botninn og raðið
fiskinum þar ofan á.
Skerið sveppina í sneiðar og raðið þeim og anansbitunum
ofan á fiskinn.
Kryddið majonesið með karríi og blandið ananssafa varlega út í, hrærið allt saman og
hellið sósunni yfir réttinn
Skerið ólífurnar í tvennt og raðið þeim ofan á.
Skerið ostinn í bita og dreifið þeim yfir.
Rífiđ ostinn og stráiđ yfir réttinn, bakiđ í 175°c heitum ofni i 20-30 mín
Berið fram með hrásalati og góðu brauði
|