Sjóstöngin
Forsíđa - Skoða úrslit Vissir ţú haus

Vestmannaeyjamótiđ 10. og 11. maí 2008, Sjóve

Um hvítasunnuhelgina var haldiđ fyrsta mót sumarsins til Íslandmeistara 2008. Mótiđ var haldiđ í Vestmannaeyjum og voru 36 ţátttakendur, ţar af 32 karlar og 4 konur frá 6 félögum (sjóve, sjór, sjósigl, sjósnć, sjóís og sjóak).

Ađ mati höfundar tókst mótiđ afar vel ţrátt fyrir ađ veđriđ hafi sett strik í reikninginn. Fyrri daginn var veđriđ ágćtt og ţví var veitt frá 07:00 til 17:00 eđa 10 tíma alls. Seinni dagurinn var hinsvegar flautađur af.

Sigurvegari hjá körlum og aflakóngur mótsins var Stefán Baldvin Sigurđsson frá sjóak. Hann veiddi 366,65 kg. og uppskar 250 stig til Íslandsmeistara fyrir vikiđ.

Sigurvegari kvenna var Svala Júlía Ólafsdóttir hjá Sjósigl međ 230,35 kg. En hún var líka međ stćrsta ţorskinn sem reyndist einnig vera stćrsti fiskur mótsins.

Sveitaverđlaun karla fór til sjóak en ţá sveit skipađi Stefán Baldvin Sigurđsson, Pétur Sigurđsson, Rúnar Helgi Andrason og Baldvin S.Baldvinsson.
Ţeir voru međ 301,86 kg. í međalţyngd á stöng.

Sigursveit kvenna var blönduđ sveit en hana skipuđu Guđrún Jóhannesdóttir sjóak,Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl, Sigríđur Kjartansdóttir sjóís og Sonja Andrésdóttir sjóve. Ţćr voru međ 193,45 kg. í međalţyngd á stöng.

Flestar tegundir fékk Jón Sćvar Sigurđsson frá sjósigl en hann var međ 9 tegundir alls.

Stćrstu fiskar mótsins:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 15,55 kg Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl
Ýsa 4,5 kg Þiðrik H Unason Sjósigl
Ufsi 10,75 kg Einar Birgir Einarsson Sjóve
Langa 10,45 kg Jón Sævar Sigurðson Sjósigl
Keila 7,35 kg Gunnar Magnússon Sjósigl
Karfi 1,55 kg Óli Brynjar Sverrisson Sjósigl
Steinbítur 3,70 kg Hörður Þ. Hjálmarsson Sjósigl
Lúða 13,25 kg Þorvaldur Kristjánsson Sjóve
Lýsa 1,10 kg Þorvaldur Kristjánsson Sjóve
Sólkoli 1,10 kg Jóhann Ragnar Kjartansson Sjóak

Aflahćsti bátur mótsins var Sporđur VE 9 međ heildarafla 1026,90 kg. og 342,30 kg. Ađ međaltali á stöng. Skipstjóri var Ólafur Már Sigmundsson.

Aflahćsti heimamađurinn var Einar Birgir Einarsson međ 347,10 kg.

Heildarafli mótsins var 7,059 kg. og 196,08 kg. ađ međaltali á stöng.

Höfundur vill ţakka mótshöldurum fyrir skemmtilegt mót. Megi ţiđ eiga gott og farsćlt sjóstangaveiđisumar.

Róbert Gils Róbertsson, sjostongin.is
Myndir eru komnar í albúm.

 

© Anna Sóley Karlsdóttir