![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
| Forsíða - Skoða úrslit |
|
|||||||||||||||||||||||||||
Patreksfjarðarmótið 23. og 24. maí 2008, SjórAnnað mót sumarsins var haldið á Patreksfirði dagana 23.-24. maí og mættu 45 manns til leiks, þar af 40 karlar og 5 konur frá 5 félögum Það var hvasst og svolítið öldurót fyrri dag mótsins en þrátt fyrir það var fiskeríið gott. Tuttugu manns fóru yfir tonn í afla og þá fóru 9 yfir 800 kg. Þetta mót verður minnistætt fyrir tvennt. Annars vegar var ýmislegt að skipulagi sem gerði m.a. það að verkum að tvær sveitir karla voru dæmdar ógildar. Sigurvegari mótsins hjá körlum og aflahæsti maður mótsins með 1743 kg. var Einar Kristinsson, Sjór. Sigurvegari kvenna var Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir með 1463 kg. en hún var líka með stærsta þorskinn sem varð svo stærsti fiskur mótsins og vóg 21,70 kg. Sveitaverðlaun karla gekk til Sjór og var sveitin skipuð þeim Pálmari Einarssyni, Þorsteini Einarssyni, Gilberti Ó. Guðjónssyni og Halldóri Þórðarsyni. Sveitaverðlaun kvenna var blönduð sveit og hana skipaði Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir (Sjóak), Svala Júlía Ólafsdóttir (Sjósigl), Guðrún Jóhannesdóttir (Sjóak) Flestar tegundir fékk Hólmar V. Gunnarsson Sjóak(Þorskur-Ufsi-Ýsu-Steinbítur). Stærstu fiskar:
Aflahæsti báturinn var Skarpur BA-373 með 5759 kg. og meðal á stöng var 1439 kg. Skipstjóri var Einir Steinn. Aflahæsti heimamaðurinn var Einar Kristinsson. Heildarafli mótsins var 41,592 kg. og var 924,26 kg. meðal á stöng. Höfundur vill þakka mótshöldurum fyrir fínt mót og megi þið eiga gott og farsælt sjóstangaveiðisumar. Róbert Gils Róbertsson.
|
||||||||||||||||||||||||||||
| © Anna Sóley Karlsdóttir
|
||||||||||||||||||||||||||||