Sjóstöngin
Forsíða - Skoða úrslit Vissir þú haus

Akureyrarmótið 15.-16. ágúst 2008, Sjóak

Áttunda og síðasta mót sumarsins var haldið á Akureyri dagana 15.-16. ágúst og mættu 83 manns, þar af 67 karlar og 16 konur frá 6 félögum (Sjór, Sjóak,
Sjósnæ, Sjósigl, Sjóve og Sjónes).

Fyrri dag mótsins var svolítill vindur en síðan rofaði til er líða tók á daginn. Gott var í sjóinn.
Síðari dagurinn byrjaði með smá vindi en batnaði er á leið og var komið mjög gott veður og sléttur sjór á leiðinni í land.

Sigurvegari mótsins hjá körlum var Árni Halldórsson Sjóak með 972 kg. og var hann líka aflahæsti einstaklingurinn í mótinu.

Sigurvegari kvenna var Björg Guðlaugsdóttir Sjósnæ með 630 kg.

Sveitaverðlaun karla var Sjóak sveit skipuð þeim Árna Halldórssyni, Hafþóri Gunnarssyni, Guðmundi Björnssyni og Sigfúsi Karlssyni.
Saman fiskuðu þeir 2150 kg. og var meðal á stöng 610,95 kg.

Sveitaverðlaun kvenna var blönduð sveit skipuð þeim Svölu Júlíu Ólafsdóttur (Sjósigl), Sigríði Rögnvaldsdóttur (Sjósigl), Eyglóu Óttarsdóttur (Sjósigl) og
Björgu Guðlaugsdóttur (Sjósnæ). Þær fiskuðu 1958 kg. og 539,64 kg. meðal á stöng.

Flestar tegundir fékk Hólmar V.Gunnarsson Sjóak alls 7 tegundir.

Stærstu fiskar:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 17,00 kg Kristbjörn Rafnsson Sjósnæ
Ufsi 10,22 kg Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak
Ýsa 4,04 kg Kristbjörn Rafnsson Sjósnæ
Steinbítur 2,99 kg Smári Jónsson Sjór
Marhnútur 0,39 kg Sigfús Karlsson Sjóak
Lýsa 1,15 kg Hafþór Gunnarsson Sjóak
Koli 0,79 kg Jón Sævar Sigurðsson Sjósigl
Karfi 0,83 kg Ólafur Kjartansson Sjóak
Síli 0,07 kg Magnús Ingólfsson Sjóak
Makríll 0,84 kg Þorsteinn Jóhannesson Sjósigl
Síld 0,38 kg Hreinn Sigurðsson Sjóak

Flesta fiska fékk Árni Halldórsson Sjóak með 556 stk.

Aflahæsti báturinn var Kapteinn Reykjalín með 2142,18 kg. og 714,06 kg. meðal á stöng. Skipstjóri var Árni Halldórsson.

Aflahæsti heimamaðurinn var Árni Halldórsson með 972,96 kg.

Heildarafli mótsins var 32,223 kg. og meðal á stöng var 392,96 kg.

Höfundur vill þakka mótshöldurum fyrir fínt mót og flott lokahóf.

Róbert Gils Róbertsson.
Sjostongin.is

Myndir eru komnar í albúm.

 

© Anna Sóley Karlsdóttir