Sjóstöngin
Forsíđa - Úrslit móta - Sjóak úrslit Vissir ţú haus

Akureyarmótið 14 og 15 ágúst 2009, Sjóak

Sjöunda mót sumarsins var haldið á Akureyri, dagana 14-15 ágúst og mættu 84 manns, 69 karlar og 15 konur frá 7 félögum
(Sjór-Sjóak-Sjósigl-Sjósnæ-Sjóve Sjónes og Sjóís)

Sigurvegari mótsins hjá körlum var Árni Halldórsson Sjóak með 799 kg og líka aflahæstur einstaklingurinn í mótinu.

Sigurvegari kvenna var Anna Sif Guðmundsdóttir Sjóak með 493 kg.

Sveitaverðlaun karla var Sjóak sveit skipuð þeim Róbert Gils Róbertsson, Rúnar H.Andrason, Baldvin S.Baldvinsson og Valur Höskulsson,
saman fiskuðu þeir 2568 kg og var meðal á stöng 681,40 kg.

Sveitaverðlaun kvenna var Sjóak sveit, Anna Sif Guðmundsdóttir, Guðrún Rúnarsdóttir, Soffía Jónsdóttir og Vilborg Hreinsdóttir,
saman fiskuðu þær 1667 kg og 460,82 kg meðal á stöng.

Flestar tegundir fékk Eyjólfur Sigurðsson Sjósnæ alls 8 tegundir.

Stćrstu fiskar:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 16,24 kg Baldvin S. Baldvinsson Sjóak
Ufsi 7,07 kg Þórir Leó Pétursson Sjóak
Ýsa 2,87 kg Bjarni Aðalsteinsson Sjónes
Steinbítur 1,35 kg Baldvin S. Baldvinsson Sjóak
Koli 0,65 kg Árni Halldórsson Sjóak
Lýsa 1,25 kg Ari B. Guðmundsson Sjónes
Karfi 0,95 kg Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak
Makríll 0,85kg Tómas Gunnarsson Sjóak
Síld 0,31 kg Eyjólfur Sigurðsson Sjósnæ
Marhnútur 0,40 kg Anna K.Stefánsdóttir Sjóak

Flesta fiska fékk Sævar Þór Ásgersson Sjóak með 648 stk

Aflahæsti báturinn var Sveini með 2150 kg og 716,82 kg meðal á stöng. Skipstjóri var Gunnþór Sveinbjörnsson.

Aflahæsti heimamaðurinn var Árni Halldórsson með 799 kg.

Heildarafli mótsins var 35.920 kg og meðal á stöng var 427,61kg.

Höfundur þakkar fyrir mjög skemmtilegt mót.

Myndir eru komnar í albúm

Róbert Gils Róbertsson.
sjostongin.is

© Anna Sóley Karlsdóttir