Sjóstöngin
Forsíða - Úrslit móta - Sjónes úrslit Vissir þú haus

Neskaupstaðarmótið 5 og 6 júní 2009, Sjónes

Þriðja mót sumarsins var haldið á Neskaupstað, dagana 5-6 júní og mættu 44 manns, 38 karlar og 6 konur frá 7 félögum
(Sjóak-Sjónes-Sjósigl-Sjór-Sjóve-Sjóís og Sjósnæ)

Sigurvegari mótsins hjá körlum var Baldvin S Baldvinsson Sjóak með 794,46 kg,

Sigurvegari kvenna var Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak með 875,00 kg og var hún líka aflahæsti einstaklingur mótsins.

Sveitaverðlaun karla var Sjósigl sveit skipuð þeim Sverrir S Ólason, Þorsteinn Jóhannesson, Heimir Sverrisson og Björn Sverrisson,
saman fiskuðu þeir 2595,66 kg og var meðal á stöng 707,22 kg.

Sveitaverðlaun kvenna var Sjóak sveit skipuð þeim Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir og Soffía Jónsdóttir og fiskuðu þær 1730 kg og 576,66 kg meðal á stöng.

Flestar tegundir fékk Pétur Sigurðsson Sjóak með 4 tegundir.

Stærstu fiskar:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 24,08 kg Bjarni Aðalsteinsson Sjónes
Ýsa 2,27 kg Hafþór Gunnarsson Sjóak
Ufsi 1,46 kg Baldvin S.Baldvinsson Sjóak
Steinbítur 6,20 kg Árni Halldórsson Sjóak
Koli 0,35 kg Kristján Tryggvason Sjór
Lúða 1,29 kg Gunnar Magnússon Sjósigl

Flesta fiska fékk Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Sjóak með 540 stk

Aflahæsti báturinn var Gylfi með 2135 kg og 711,66 kg meðal á stöng. Skipstjóri var Gunnar Hjaltason.

Aflahæsti heimamaðurinn var Einar Sveinn Sveinsson með 660,17 kg.

Heildarafli mótsins var 20.713 kg og meðal á stöng var 470,75 kg.

Höfundur vil þakka mótshöldurum kærlega fyrir vel heppnað 20 ára afmælismót, stór fína óvissuferð yfir á Eskifjörð og lokahófið var mjög fínt.

Myndir eru komnar í albúm

Róbert Gils Róbertsson.
Sjostongin.is

 

© Anna Sóley Karlsdóttir