![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Forsíða - Skoða úrslit |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ólafsvíkurmótið 18.-19. júní 2008, SjósnæSjötta mót sumarsins var haldið í Ólafsvík dagana 18-19 júlí. Þangað mættu 40 karlar og 9 konur frá 7 félögum (Sjór, Sjóís, Sjóak, Sjósnæ, Sjósigl, Sjóve og Sjónes). Fyrri dagur mótsins byrjaði með kalda og vont í sjóinn. Veðrið lagaðist þó
lítillega þegar líða tók á daginn. Sigurvegari mótsins hjá körlum var Rúnar Helgi Andrason, Sjóak, með 732,54 kg.
Það má þó geta þess að aðeins munaði 140 grömmum á fyrsta og öðru sæti hjá
körlum. Sveitaverðlaun karla var frá Sjósnæ og var skipuð þeim Jóni Einarssyni,
Kristbirni Rafnssyni, Jóni B.Andréssyni og Hilmi A. Sigurðssyni. Sveitaverðlaun kvenna var blönduð sveit skipuð þeim Sigfríði Ósk Valdimarsdóttur (Sjóak), Björgu Guðlaugsdótur (Sjósnæ) og Guðrúnu Jóhannesdóttur (Sjóak) og fiskuðu þær 1603,5 kg, og 534,48 kg í meðal á stöng. Flestar tegundir fékk Albert Guðmundsson Sjósnæ en hann var með 8 tegundir. Stærstu fiskar:
Aflahæsti báturinn var Glaumur SH 260 með 2707 kg og 676,90 meðal á stöng. Skipstjóri var Jón Einarsson. Aflahæsti heimamaðurinn var Jón Einarsson með 732,40 kg. Heildarafli mótsins var 21,642 kg og meðal á stöng var 441,67 kg. Höfundur vill þakka mótshöldurum fyrir fínt mót og megi þið eiga gott og farsælt sjóstangaveiðisumar. Róbert Gils Róbertsson.
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| © Anna Sóley Karlsdóttir
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||