![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||
| Forsíđa - Úrslit móta - Sjór úrslit |
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Patreksfjarðarmótið 14 og 15 maí 2010 , SjórFyrsta mót sumarsins var haldið á Patreksfirði, dagana 14-15 maí og mættu 50 manns,45 karlar og 5 konur frá 3 félögum Sigurvegari mótsins hjá körlum var Baldvin S. Baldvinsson Sjóak með 746 kg og hann var líka aflahæsti einstaklingurinn í mótinu. Sigurvegari kvenna var Guðrún Jóhannesdóttir Sjóak með 539 kg Sveitaverðlaun karla var blönduð sveit skipuð þeim Guðmundi Björnsyni Sjóak, Ólafi Bjarnasyni Sjósigl, Herði Þ Hjálmarsyni Sjósigl og Hafþóri Gunnarsyni Sjóak Sveitaverðlaun kvenna var blönduð sveit,Guðrún Jóhannesdóttir Sjóak, Anna Sif Guðmundsdóttir Sjóak, Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl, Elín Snorradóttir Sjór og Þorgerður Einarsdóttir Sjór ,saman fiskuðu þær 1865 kg og 445,67 kg meðal á stöng. Flestar tegundir fékk Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl alls 5 tegundir. Stćrstu fiskar:
Flesta fiska fékk Ólafur Bjarnasson Sjósigl, 419 stk. Aflahæsti báturinn var Lóa BA 177 með 1965 kg og 655,30 kg meðal á stöng. Skipstjóri var Guðmundur Svavarsson. Aflahæsti heimamaðurinn var Kristinn Hrólfsson með 641 kg. Heildarafli mótsins var 20.488 kg og meðal á stöng var 410 kg. Róbert Gils Róbertsson. |
||||||||||||||||||||||||||||||||
| © Anna Sóley Karlsdóttir
|
||||||||||||||||||||||||||||||||