Sjóstöngin
Forsíđa - Skoða úrslit Vissir ţú haus

Siglufjarðarmótið 1.-2. ágúst 2008, Sjósigl

Sjöunda mót sumarsins var haldiđ á Siglufirđi dagana 1. - 2. ágúst og voru 60 ţátttakendur, ţar af 45 karlar og 15 konur frá 7 félögum (Sjór, Sjóskip, Sjóak, Sjósnć, Sjósigl, Sjóve og Sjónes)

Fyrri dag mótsins var sól og bjart yfir en ţó nokkur vindur. Ţegar í land var komiđ var hinsvegar algjört logn og mikill hiti.
Síđari dagurinn byrjađi međ ţoku sem létti er líđa tók á daginn. Áfram var gott veđur í landi.
Í ţessu móti veiddust nokkrir stórir og fallegir fiskar. Til ađ mynda veiddust 24 ţorskar sem vógu yfir 10 kg. og var sá stćrsti ţeirra 24,53 kg.
Ţetta er annar stćrsti fiskur sumarsins og ađeins 250 grömmum frá ţeim stćrsta. Einnig veiddist stćrđarinnar karfi sem vóg 4,27 kg. og hefur ekki svona stór karfi veiđst á móti í minnst 3 ár.

Sigurvegari mótsins hjá körlum var Árni Halldórsson Sjóak með 250 stig og var hann líka aflahæsti einstaklingurinn í mótinu međ 1.197 kg.

Sigurvegari kvenna var Una Kristín Árnadóttir með 810,67 kg og 208 stig.

Aflahćsta sveit karla var frá Sjóak skipuđ ţeim Pétri Sigurđssyni, Árna Halldórssyni, Rúnari Helga Andrasyni og Róberti Gils Róbertssyni. Saman fiskuđu ţeir 2686 kg. og var međal á stöng 732,29 kg.

Aflahćst sveit kvenna var blönduđ sveit skipuđ ţeim Unu Kristínu Árnadóttur (Sjósigl), Elvu Dögg Sverrisdóttur (Sjósigl), Eygló Óttarsdóttur (Sjósigl) og Heiđbrá Guđmundsdóttur (Sjónes). Ţćr fiskuđu 2205 kg. og 540,91 kg. í međal á stöng..

Flestar tegundir fékk Smári Jónsson Sjór alls 6 tegundir.

Stćrstu fiskar:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 24,53 kg Pétur Sigurðsson Sjóak
Ufsi 6,35 kg Kristinn Hrólfsson Sjór
Ýsa 2,00 kg Kristinn Hrólfsson Sjór
Steinbítur 2,83 kg Jón Þór Guðmundsson Sjór
Marhnútur 0,46 kg Ragnar F Valsson Sjór
Lýsa 0,97 kg Friðrik Yngvason Sjóak
Koli 0,41 kg Gilbert Ó.Guðjónsson Sjór
Karfi 4,27 kg Smári Jónsson Sjór
Lúða 1,70 kg Sævar Jónsson Sjónes
Makríll 0,66 kg Sverrir S.Ólason Sjósigl

Flesta fiska fékk Árni Halldórsson Sjóak međ 779 stk.

Aflahćsti báturinn var Huld EA-70 međ 4023,94 kg. og 1005,98 kg. međal á stöng. Skipstjóri var Árni Halldórsson

Aflahćsti heimamađurinn var Ţorsteinn Jóhannesson međ 1089,33 kg.

Heildarafli mótsins var 25,084 kg. og međal á stöng var 418,06 kg..

Höfundur vill ţakka mótshöldurum fyrir fínt mót međ frábćru veđri og megi ţiđ eiga gott og farsćlt sjóstangaveiđisumar.

Róbert Gils Róbertsson.
Sjostongin.is

Myndir eru komnar í albúm.

 

© Anna Sóley Karlsdóttir