Sjóstöngin
Forsíđa - Úrslit móta - Sjósnæ úrslit Vissir ţú haus

Ólafsvíkurmótið 16 og 17 júlí 2010 , Sjósnæ

Sjötta mót sumarsins var haldið í Ólafsvík, dagana 16-17 júlí og mættu 67 manns,59 karlar og 8 konur frá 8 félögum
(Sjór-Sjóak-Sjósigl-Sjóve-Sjósnæ-Sjónes-Sjóskip-Sjóís)

Sigurvegari mótsins hjá körlum var Baldvin S.Baldvinsson Sjóak með 752 kg og hann var líka aflahæsti einstaklingurinn í mótinu.

Sigurvegari kvenna var Svala Júlía Ólafsdóttir Sjósigl með 510 kg

Sveitaverðlaun karla var Sjóak sveit skipuð þeim, Baldvini S.Baldvinsyni,Rúnari H.Andrassyni, Róberti Gils Róbertsyni, og Stefáni Baldvin Sigurðsyni saman fiskuðu þeir 1910 kg og var meðal á stöng 533,63 kg.

Sveitaverðlaun kvenna var blönduð sveit,Guðrún Jóhannesdóttir Sjóak,Björg Guðlaugsdóttir Sjósnæ,Sigurbjörg Kristjánsdóttir Sjósnæ og Ólöf Sigurðardóttir Sjósnæ saman fiskuðu þær 1358 kg og 391,10 kg meðal á stöng.

Flestar tegundir fékk Stefán Baldvin Sigurðsson Sjóak alls 8 tegundir.

Stćrstu fiskar:

Fiskur Þyngd Veiðimaður Félag
Þorskur 17,0 kg Matthías Sveinsson Sjónes
Ufsi 13,0 kg
Gilbert O. Guðjónsson
Sjór
Ýsa 2,16 kg Baldvin S. Baldvinsson Sjóak
Steinbítur 5,30 kg Sigtryggur Þrastarson Sjóve
Karfi 1,25 kg Kári Jóhansson Sjór
Keila 6,00 kg Gottskálk Jón Bjarnason Sjór
Lýsa 1,00 kg Einar Ingi Einarsson Sjóak
Makríll 0,85 kg Sigríður Rögnvaldsdóttir Sjósigl
Langa 4,30 kg Gilbert O. Guðjónsson Sjór
Koli 0,59 kg Kári Jóhansson Sjór

Flesta fiska fékk Jón Sævar Sigurðsson Sjósigl, 299 stk.

Hæsti báturinn með meðal á stöng var Pollux SH-40 með 2060 kg og 515,19 kg meðal á stöng.

Aflahæsti heimamaðurinn var Jón B.Andrésson með 607 kg.

Heildarafli mótsins var 21.149 kg og meðal á stöng var 315 kg.

Róbert Gils Róbertsson.
sjostongin.is

© Anna Sóley Karlsdóttir