Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Baldvin S Baldvinsson í Sjóak Vissir þú haus

Baldvin S Baldvinsson í Sjóak

Baldvin S Baldvinsson í Sjóak 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Það er í raun Akureyri en fiskeríið segjir ekki allt.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Á Norðfirði 2. sætið.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Ég er ekki alveg viss en ca síðan 1985.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Flugur.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Já já.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Sumt er til góðs en ekki allt.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Hún breytir svo það verða fleiri um hituna.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei er á móti tegundaveiði í þessu kerfi.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Það er sama hver beitan er en hún verður að vera í lagi og nothæf.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Lúðuna.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Já.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Ef það er hægt um kvöldið þá er það betra.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já..

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Gaman að fá bikar en sakkan væri líka sniðug en ekki endilega til að nota frekar sem fjölbreytni í verðlaunum.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Já alveg til í það,mætti gefa meira af nytsamlegum hlutum sem nýtast í veiðinni.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Nei mér finnst það ekki dýrt sport.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Já og nei, þetta er svona vafa en kannski til að tengja hringinn um landið betur.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Stefán Baldvin með stærstu og er ca 30 kg.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Mínu félagi Sjóak.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir