Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Gilbert Ó Guðjónsson Vissir þú haus

Gilbert Ó Guðjónsson í Sjór

Gilbert Ó Guðjónsson í Sjór1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Þeir eru nokkrir en Sigló er með þeim skemmtilegri.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Ég var í 2. sæti upp á Akranesi í fyrra og besti aflinn er rúm 650 kg á Patró í fyrra líka.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Frá 2002 held ég.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Nota mikið flugur en ég er duglegur með pilkinn.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Já.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já,ég hef ekkert út á þær að setja.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Já ég verð að segja það.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Ég er ekkert fyrir tegundaveiðina, nei þetta passar ekki saman.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Hlyntari saury

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Já mér finnst keilan djöfulli skemmtileg.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Nei.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Alveg sama,allt í lagi um morguninn.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Ég myndi taka sökkuna.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Litist vel á það.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Nei.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já alveg örugglega.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei,fínt eins og þetta er.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Nei ég er bara ekki viss.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Konan frá Sjóak og kallinn frá Sjósigl.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir