Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Hörður Þ Hjálmarsson Vissir þú haus

Hörður Þ Hjálmarsson í Sjósigl

Kristbjörn Rafnsson í Sjósnæ 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Neskaupstaður.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Besti afla árangurinn minn er um tæp 900 kg í móti.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: 12 ár.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Gúmmíkrókur

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Lítið

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já þær fara batnandi.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Já.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Smokk.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Nei.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Já..

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Strax um kvöldið.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já já.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Ég myndi heldur vilja sökkuna.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Það gæti verið erfitt að þvinga félögin til að kaupa dýrari hluti til að gefa í verðlaun en þetta gæti verið sniðugt.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Nei.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Er það ekki Stefán í Sjóak með ca 32 kg lúðu.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: SJOSIGL,með stórum stöfum.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir