Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Kristbjörn Rafnsson Vissir þú haus

Kristbjörn Rafnsson Sjósnæ

Kristbjörn Rafnsson í Sjósnæ 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Það er Sigló,ég kann mjög vel við mig þar.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Það er á Ísafirði þegar ég fór í 2 tonnin.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Æi ég er ekki búinn að vera mörg ár í þessu kannski 4-6 ár.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Ég er túttukall.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Já já..

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já Já er ekki alltaf verið að hræra í þessu.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Nei ekkert frekar.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Já ég er hlynntur því og ég held að þeir gera sér ekki grein fyrir því að fólk eldist í þessu sporti og vill kannski ekki eltast við þessa magnveiði en vera samt með.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Smokkurinn er langbestur af þessu,hann helst svo vel á króknum annað með síldina sem fer bara stundum af með að renna færunum niður.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Nei ekkert sérstaklega,bara gaman að veiða alla fiska sem bíta á.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Nei ekkert frekar.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Alveg sama en ef það er hægt um kvöldið þá er það fínt.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Ég á svo mikið af bikurum að mér er alveg sama.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Það finndist mér alveg meirrháttar.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Ég held ekki,gólfið er til dæmis mikið dýrara.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Ég held ég mundi gera það já og með góðum félagskap.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei,mér finnst eins og það mæti sameina þau eitthvað frekar.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Fékkst ekki svakalega stór lúða í Vestmannaeyjum einhvern tíman?

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Þetta verður bara barátta.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir