Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Ólafur Hauksson Vissir þú haus

Ólafur Hauksson í Sjóve

Ólafur Hauksson í Sjóve 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Vestmannaeyjar.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Ekki hugmynd um það.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Fyrjaði fyrir 10 árum eða 1999.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Nota meira gúmíkróka

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Já smávegis.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já þær eru bara mjög fínar.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Já ég held að það geri meiri spennu.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei ekkert frekar.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Saury.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Já já keilu og löngu.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Já.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Allt í lagi í nestispakka daginn eftir en það er líka gaman að hitta fólkið um kvöldið.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já ég vissi það.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Vildi nú bara fá bikarinn.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Ég held það væri ekkert vitlaust að gefa eitthvað sem myndi nýtast í veiðinni.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Nei, startpakkinn er kannski dýrari en annars ekki.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já ef ég kæmist.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei held ekki.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Ég veit ekki hvort lúðan hans Boga er þarna inni en annars held ég að það sé Stefán formaðurSjól sem á hana og er um 40 kg.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Held að bæði koma frá Sjóak í ár.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir