Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir Vissir þú haus

Sigfríð Ósk Valdimarsdóttirí Sjóak

Una Kristín Árnadóttir í Sjósigl 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Ég get ekki gert upp á milli þeirra.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Minn besti afli var á Ísafirði þegar ég fékk rúm 2 tonn af ufsa.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Ég byrjaði 1991.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Það fer eftir stöðunum sem ég er að veiða á.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Já það geri ég reyndar.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já að mestu.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Já alveg örugglega.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Ef ég mætti velja einhverja þá væri það kúfisk.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Nei reyndar ekki.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Ég hef mikið spáð í þetta en veit ekki hvort það myndi vera betra eða til bóta.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Að kveldi.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Ég vel bikarinn.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Auðvitað gæti Sjól ekki setti félögnum þessa skildu,en ég myndi beina til félaganna
að þau myndu vera með fleiri verðlaun sem veiðimenn gætu nýtt sér í veiðinni.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Startkostnaðurinn alla vegna.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já ég hugsa það.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei alls ekki.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Ég myndi halda það væri lúðan hans Stéfáns í Sjóak og hún var 26-27 kg.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Það er allt opið,framtíðin er óskrifað blað og allir geta unnið.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir