Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Sonja Andrésdóttir Vissir þú haus

Sonja Andrésdóttir Sjóve

Ólafur Hauksson í Sjóve 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Vestmannaeyjar.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: Innanfélagsmótið hjá okkur 2005,var aflahæsti nýliðinn með 260-270 kg.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: Síðan 2005.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Gúmmíkróka.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Nei.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Já.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Jú er það ekki.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei ég er hlynntari magnveiðinni.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Síldin.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Bara gaman að veiða þorsk.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Nei.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Betra um kvöldið.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Nei.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Sökkuna.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Það er mjög sniðugt.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Nei.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Það er alveg nóg af þeim.

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Nei.

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Auðvitað Sjóve.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir