Sjóstöngin
Forsíða - Veiðimaður vikunnar - Uma Kristín Árnadóttir Vissir þú haus

Una Kristín Árnadóttir í Sjósigl

Una Kristín Árnadóttir í Sjósigl 1. Hver er upphaldsmótstaðurinn þinn?
Svar: Bolungarvík.

2. Hver er þinn besti árangur í mótaröð Sjól? (sæti og/eða kg)
Svar: 1. sæti á Sigló um síðustu verslunarmannahelgi.



3. Hvað ertu búinn að vera mörg ár í sjóstönginni?
Svar: 2 ár, fór fyrsta árið á eitt mót í ömurlegu veðri með tilheyrandi sjóveiki hugsandi hvað er gaman við þetta :) en fór svo á þrjú mót í fyrra.

4. Hvort notar þú meira flugur eða gúmíkróka?
Svar: Ég nota mest gúmíkróka en er búin að prófa flugu og líkaði vel.

5. Gerir þú sjálfur flugur?
Svar: Nei, læt Svölu og Siffu um það.

6. Finnst þér mótareglur Sjól vera góðar og sangjarnar?
Svar: Það sem ég hef heyrt líkar mér vel við.

7. Á síðasta ári breytti Sjól bátastigunum þannig að keppandi verður að vinna bátinn sinn báða dagana til að fá 100 bátastig,
finnst þér þessi breyting hafa gert keppnina fyrir íslandsmeistara meira spennandi?
Svar: Já.

8. Finnst þér allir mótshaldarar ættu að bjóða upp á tegundabáta?
Svar: Nei finnst það ekki fara saman.

9. Ef þú mætir velja beitu í bátinn þinn hvort mundir þú velja smokk,síld eða saury
Svar: Veistu það, ég veit það ekki., smokkfiskurinn er sístur.

10. Áttu þinn uppáhalds fisk til að veiða?
Svar: Mig langar svo til að veiða keilu, þykir það agalega krúttlegur fiskur.

11. Finnst þér að bátastigin ættu að vera tvískipt,eitt fyrir karla og önnur fyrir konur?
Svar: Nei eins á línuna.

12. Hvort finnst þér betra að sjá aflatölur fyrri dags strax um kvöldið eða bara í nestispakka daginn eftir.
Svar: Mér þykir gaman að hitta fólkið og tel það gott fyrir alla að hittast og spjalla. Þannig að ég er hlynnt því að fá þær um kvöldið, enda er maður að kafna úr forvitni yfir aflatölum dagsins.

13. Vissir þú að allir keppendur eiga að vera tryggðir í mótunum af mótshöldurum samkvæmt reglum Sjól?
Svar: Já ég hef staðið í þeirri meiningu annað væri brjálæði.

14. Ef þú myndir veiða stærsta þorskinn í einhverju móti,hvort myndiru velja bikar með greftri plötu ''stærsti þorskur'' eða sökku með greftri plötu ''stærsti þorskur''?
Svar: Sökku.

15. Hvað myndi þér finnast ef Sjól myndi setja reglu á mótshaldara og skylda þá til að gefa sjóstöng eða sambærilegan hlut sem nýtist í veiðinni í verðlaun fyrir flestar tegundir í móti í staðin fyrir bikar?
Svar: Já það er alltaf gaman að fá viðbót við veiðigræjurnar.

16. Finnst þér sjóstangaveiði vera dýrt sport miðað við önnur sport?
Svar: Já og nei.

17. Ef sjóstangafélagið þitt mundi bjóða félagsmönnum sínum að koma einu sinni í bátsferð um veturinn og fiska sér í soðið mundir þú nýta þér það?
Svar: Já ekki spurning.

18. Finnst þér vera pláss fyrir fleiri félög innan landsamband sjóstangaveiðifélaga?
Svar: Nei er það nokkuð

19. Veistu hver á metið með stærstu lúðuna og hvað hún var þung? (samkvæmt metfiskaskrá Sjól) rétt er Stefán B Sigurðsson,Sjóak 31,5 kg.
Svar: Já það er Stefán B Sigurðsson hjá Sjóak 31,5 kg :)

20. Frá hvaða félagi sérðu fyrir þér íslandsmeistara karla og kvenna sumarið 2009?
Svar: Sigló og Sjóak.

 

 

© Anna Sóley Karlsdóttir